55.is Markaðsstofa
SEO

Síðuhraði og SEO: Af hverju hraði skiptir máli

Af hverju hraði vefsíðu skiptir máli fyrir SEO, notendaupplifun og viðskipti, og hvað þú getur lagað fyrst.

8. nóvember 2024
Uppfært 12. apríl 2026
9 mín lestur
Síðuhraði og SEO: Af hverju hraði skiptir máli

Hraði er ekki bara tæknimál

Fólk bíður ekki lengi eftir hægum vef. Ef síðan er sein í gang getur notandinn hoppað burt áður en hann sér það sem þú ert að bjóða.

Það gerir hraða að beinum þætti í bæði notendaupplifun og SEO. Hægur vefur getur orðið dýr, jafnvel þótt útlitið sé fallegt og efnið sé gott.

Ef þú vilt að leitarvélabestun skili raunverulegum fyrirspurnum geturðu ekki skilið hraðann útundan. Þetta er hluti af grunninum sem ræður því hvort lífræn umferð nýtist eða leki út.

ℹ️
� Hugsaðu hraða sem hluta af upplifuninni frá fyrstu sekúndu, ekki bara sem próf í einhverju tóli.

Hvað skiptir mestu máli í dag?

Google horfir ekki bara á eitt númer. Í dag snýst hraði og page experience mest um þrjá hluti:

  • LCP - hversu fljótt stærsta sýnilega efnið birtist
  • INP - hversu vel síðan bregst við smellum og öðrum aðgerðum
  • CLS - hvort síðan hoppar til á meðan hún hleðst

Þetta eru tölurnar sem segja hvort vefurinn sé í raun nothæfur, ekki bara hvort hann líti vel út í skjáskotum.

Hvar byrjarðu?

Fyrsta skrefið er að finna út hvað er að draga síðuna niður. Algengir sökudólgar eru:

  • stórar og óhagræddar myndir
  • of mikið JavaScript
  • þungar fonts eða of mörg fontafbrigði
  • of mörg third-party scripts
  • veik hýsing eða léleg caching
  • of þungar forsíður og þjónustusíður

Það sem oft skiptir mestu máli

  • minnka myndastærðir og nota rétt snið
  • losa um óþarfa kóða
  • fjarlægja eða seinka third-party skriptum
  • halda fyrsta skjánum léttum
  • passa að hýsing og cache vinni með síðunni, ekki á móti henni
  • forgangsraða því sem þarf að birtast strax

Hvernig mælir þú hraðann rétt?

Ef þú vilt bæta hraða þarftu bæði lab data og field data.

Notaðu þessi tól:

Mikilvægt er að lesa þetta rétt:

  • PageSpeed Insights hjálpar þér að finna vandamál á einni síðu
  • Search Console sýnir hvort vandamálið sé raunverulegt í notkun
  • Lighthouse hjálpar þér að prófa breytingar og skilja hvað er þungt

Hvað á að laga fyrst?

Ef þú vilt mestan ávinninginn fyrst, byrjaðu hér:

1. minnka þyngstu myndirnar 2. fjarlægja óþarfa skriptur og plugins 3. seinka eða fækka third-party scripts 4. forgangsraða efni sem þarf að sjást strax 5. setja cache og compression rétt upp 6. athuga hvort fonts eða video séu að tefja fyrstu birtingu 7. endurskoða forsíðu, þjónustusíður og aðrar mikilvægar lendingarsíður

Hvað á ekki að gera?

  • elta 100/100 í prófi sem endurspeglar ekki raunverulega notkun
  • bæta við nýjum tólum áður en grunnurinn er hreinsaður
  • horfa bara á desktop þegar mest af umferðinni er í síma
  • laga smáatriði áður en stærstu flöskuhálsarnir eru farnir
  • halda áfram að bæta við efni ofan á þunga síðu

Hvernig tengist þetta SEO í reynd?

Hraði er ekki bara “uppfærsla sem gæti hjálpað”. Hann hefur áhrif á:

  • hvort notandinn verði áfram á síðunni
  • hversu langt hann skrífur niður eða smellir áfram
  • hvort honum finnist síðan traust
  • hvort leitarniðurstaðan leiði til raunverulegrar niðurstöðu

Þess vegna er gott að tengja þetta við farsímavæna hönnun og mælingu á SEO árangri þegar þú ert að vinna síðuna í heild.

Niðurstaða

Bestu hraðabæturnar eru yfirleitt ekki flóknar. Þær eru praktískar: léttari síða, færri flöskuhálsar og betri röðun á því sem þarf að hlaðast fyrst.

Ef þú lagar það sem hægir mest á síðunni fyrst, færðu yfirleitt bæði betri upplifun og skýrari SEO-áhrif.

#Síðuhraði#Core Web Vitals#SEO og hraði#Notendaupplifun
Algengar spurningar

Algengar spurningar

Stutt svör við því sem flestir vilja vita um þetta efni.

Er hraði beinn ranking factor?
Hraði og Core Web Vitals eru hluti af heildarmati Google á page experience. Þau eru ekki allt, en þau skipta máli þegar tvær síður eru svipaðar að öðru leyti.
Af hverju sýnir PageSpeed Insights góða niðurstöðu en Search Console ekki?
PageSpeed Insights sýnir bæði prófgögn og, ef til eru, notendagögn. Search Console byggir á raunverulegri notkun yfir tíma. Þess vegna geta niðurstöður verið ólíkar.
Hvað á að laga fyrst á hægri síðu?
Byrjaðu á myndum, þungum skriptum, third-party tólfum og fyrstu sýn síðunnar. Þar liggur oft stærsti ávinningurinn.
Sigurður Þór

Sigurður Þór

Stofnandi og framkvæmdastjóri 55.is. Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu með áralanga reynslu af SEO, Google Ads og vefsíðugerð fyrir íslensk fyrirtæki.

Tilboð

Vilt þú ná betri árangri?

Við hjálpum íslenskum fyrirtækjum að vaxa með gagnreyndri stafrænni markaðssetningu. Fáðu ókeypis ráðgjöf í dag.

Tökum spjall