55.is Markaðsstofa
SEO

10 SEO aðgerðir sem geta lyft vefsíðunni þinni

Tíu SEO aðgerðir sem skipta mestu máli ef þú vilt bæta sýnileika, smelli og viðskipti án þess að missa fókus.

30. október 2024
Uppfært 12. apríl 2026
13 mín lestur
10 SEO aðgerðir sem geta lyft vefsíðunni þinni

Tíu SEO aðgerðir sem skila mestum árangri

Það er auðvelt að missa sig í löngum SEO-tjekklóslum. Flestir vefir þurfa ekki hundrað aðgerðir í einu. Þeir þurfa réttu tíu hlutina, í réttri röð.

Þessi grein er því ekki töfraformúla heldur forgangslisti. Hún hjálpar þér að velja hvað þú átt að laga fyrst.

ℹ️
//developers.google.com/search/docs/fundamentals/seo-starter-guide). Þar er grunnurinn settur fram á skýran og hagnýtan hátt.

Hvernig á að nota listann

Ef þú hefur bara tíma til að vinna í þremur hlutum fyrst, byrjaðu hér:

1. leitarorðarannsókn 2. efnisuppbygging og innihald 3. hraði og tæknigrunnur

Þegar þetta er komið í lag, kemur restin miklu auðveldara.

1. Veldu rétt leitarorð

Byrjaðu á því að vita hvað fólk leitar að, ekki hvað þú heldur að það leiti að. Ef þú hittir ekki rétta leitina, skiptir restin miklu minna máli.

Algeng mistök eru að velja of breið orð eða orð sem hljóma vel innan fyrirtækisins en passa ekki við raunverulegt orðalag viðskiptavina. Þá endarðu með síður sem eru fínar á pappír, en ná ekki tengingu við það sem fólk er actually að slá inn í Google.

Það sem virkar betur er að velja eitt aðalorð og nokkur nátengd stuðningsorð fyrir hverja síðu. Síðan spyrðu: er notandinn að leita að upplýsingum, bera saman lausnir eða tilbúinn að hafa samband?

- veldu eitt aðalleitarorð fyrir hverja síðu - skrifaðu niður spurningar sem viðskiptavinir spyrja í alvöru - horfðu á hvað fólk vill fá út úr leitinni, ekki bara leitarmagn - notaðu leitarorðarannsókn til að finna síður sem þú átt raunhæfan möguleika á að raða fyrir

2. Búðu til efni sem svarar leitinni

Gott efni er ekki bara langt efni. Það þarf að svara því sem notandinn var í raun að leita að og hjálpa honum að taka næsta skref.

Ef einhver leitar að “hvað er Google Search Console” vill hann ekki bara almenna skilgreiningu. Hann vill skilja hvað tólið gerir, af hverju það skiptir máli og hvað hann getur actually gert með því. Sama regla á við um þjónustusíður, bloggfærslur og samanburðarsíður.

Spyrðu þig því alltaf:

  • hvað þarf lesandinn að skilja?
  • hvaða vandamál er hann að reyna að leysa?
  • hvað á hann að gera eftir lesturinn?
ℹ️
� Ef textinn er bara “upplýsandi” en leiðir lesandann ekki áfram, þá missir hann oft slagkraft þó hann sé tæknilega réttur.

3. Hafa skýra uppbyggingu á síðunni

Google og notendur þurfa að skilja hvernig vefurinn hangir saman. Skýr síðuuppbygging hjálpar líka til við að forgangsraða því sem skiptir mestu máli.

Þegar vefur er óskýr fer oft of mikil orka í að “push-a” einstakar síður í stað þess að byggja upp kerfi sem styður þær. Það sést til dæmis þegar mikilvægar þjónustusíður eru faldar djúpt inni, eða þegar bloggefni tengist ekki neinum næstu skrefum.

Fyrsta reglan er einföld: mikilvægustu síðurnar eiga að vera auðfundnar bæði fyrir fólk og leitarvélar.

- forsíða á að leiða í rétta flokka - flokkasíður eiga að styðja við mikilvæg efni - mikilvægustu síður eiga ekki að vera faldar djúpt í vefnum

Skoðaðu innri tengla og uppbyggingu ef þú vilt gera þetta betur.

4. Vinnið vel með title og meta description

Title og meta description ráða miklu um hvort fólk smelli. Þau eiga að segja skýrt hvað síðuna er um og gefa ástæðu til að opna hana.

Hér tapa margir á því að skrifa annaðhvort of almennan texta eða texta sem er fullur af leitarorðum en segir lesandanum lítið. Niðurstaðan er að síðan birtist, en CTR helst veik.

Prófaðu að skrifa title eins og þú sért að svara þessari spurningu: “Af hverju á ég að opna þessa síðu frekar en næstu þrjár?”

- settu lykilatriðið fyrst í titilinn - skrifaðu einstaka lýsingu fyrir hverja síðu - forðastu að nota sama textann alls staðar - láttu meta textann hljóma eins og manneskja skrifaði hann

Ef þessi þáttur er veikur, tapa jafnvel góðar síður smellum.

5. Hagræddu hraða og farsímaupplifun

Ef vefurinn er hægur eða erfiður í síma, tapar hann bæði notendum og stöðu. Hraði er ekki bara tæknimál heldur líka upplifunarmál.

Þetta er einn af þeim þáttum sem fólk talar mikið um en lagar oft seint. Ástæðan er að hraðavandamál felast sjaldan í einu atriði. Það er sambland af myndum, JavaScript, fontum, þriðju aðila verkfærum og því hvað síðan reynir að hlaða of miklu strax.

Í raun skilar mest að byrja á stærstu flöskuhálsunum, ekki að elta fullkomið score í einu tóli.

- myndum - þungum skriptum - þriðju aðila verkfærum - því sem hlaðast þarf strax á skjáinn

Skoðaðu líka greinina um síðuhraða og SEO ef þú vilt laga þetta í skynsamlegri röð.

6. Notaðu innri tengla markvisst

Innri tenglar hjálpa bæði fólki og leitarvélum að skilja hvað skiptir mestu máli. Þeir eiga samt að vera gagnlegir, ekki bara settir inn til að fylla upp í texta.

Veikir innri tenglar sjást oft þannig að grein fær ágæta umferð en enginn heldur áfram. Sterkir innri tenglar gera hið gagnstæða: þeir færa lesandann áfram í næsta skref, næstu grein eða næstu þjónustusíðu án þess að það líti út eins og push.

Bestu reglurnar eru einfaldar:

  • tengdu í síður sem hjálpa lesandanum áfram
  • notaðu lýsandi tengitexta
  • tengdu frá sterku efni í mikilvægara efni
  • forðastu tóma “sjá meira” tengla
ℹ️
️ Góð innri tenging snýst ekki um magn. Hún snýst um samhengi.

7. Bættu við structured data þar sem það á við

Structured data hjálpar leitarvélum að skilja efnið betur og getur opnað fyrir ríkari birtingu í leitarniðurstöðum.

Þetta er ekki eitthvað sem þarf að setja alls staðar. Besti árangurinn kemur yfirleitt þegar þú velur schema sem passar raunverulega við síðuna í stað þess að reyna að “schema-merkja” allt.

Það á sérstaklega við um:

  • article schema
  • FAQ schema
  • local business schema
  • product eða service síður

Ef þú vilt dýpka þann hluta, skoðaðu uppbyggð gögn og schema markup.

8. Byggðu bakhlekkja með gæðum, ekki magni

Bakhlekkir skipta enn máli, en þeir þurfa að koma frá vefum sem skipta raunverulega máli. Ein góð tilvísun getur verið miklu verðmætari en tugir veikra.

Hér er auðvelt að fara á ranga braut því margir leita að stystu leiðinni. En ódýrir eða spamkenndir tenglar bæta sjaldan neinu við og geta jafnvel dregið niður traust.

Sterkari leið er að búa til efni sem er þess virði að vísa í, eins og skýrar úttektir, sértæk gögn, góðar leiðbeiningar eða gagnlegt efni fyrir ákveðinn markhóp.

ℹ️
- spam tengla - keypta ódýr tenglanet - síður sem hafa ekkert samhengi við þitt efni

9. Mældu það sem skiptir máli

Ef þú mælir ekki, veistu ekki hvað er að virka. En þú þarft heldur ekki að mæla allt.

Algengur vandi er að fólk horfir annaðhvort bara á umferð eða drukknar í of mörgum tölum. Betri leið er að velja nokkrar tölur sem segja skýra sögu: hvað sést, hvað fær smelli og hvað leiðir til viðskipta.

Byrjaðu á:

  • impressions og clicks
  • CTR
  • stöðu lykilorða
  • engagement
  • fyrirspurnum og viðskiptum

Skoðaðu mælingu á SEO árangri ef þú vilt gera þetta rétt.

10. Endurskoðaðu og uppfærðu reglulega

SEO er ekki ein aðgerð. Það er kerfi sem þarf að halda við. Það sem var gott fyrir sex mánuðum er ekki alltaf gott núna.

Margar síður eru ekki slæmar, þær eru bara orðnar úreltar, of almennar eða hafa misst tengingu við það sem fólk er að leita að núna. Þar getur regluleg endurskoðun skilað meira en að búa alltaf til nýtt efni.

- uppfærðu gamlar greinar - lagaðu síður sem fá umferð en skila engu - bættu efni sem hefur misst fókus - fjarlægðu eða sameinaðu það sem skilar engu

Hvað á að gera fyrst?

Ef þú ert fastur og veit ekki hvar á að byrja, veldu þetta:

1. leitarorð 2. efnisuppbygging 3. title og meta description 4. hraði 5. innri tenglar

Þetta eru oft skrefin sem skila mestu fyrst.

Niðurstaða

Bestu SEO-aðgerðirnar eru yfirleitt þær sem gera vefinn skýrari, hraðari og gagnlegri. Það er ekki glæsilegt svar, en það er rétt svar.

Ef þú vilt taka næsta skref, byrjaðu á leitarorðarannsókn og innri tenglum, því þar liggur grunnurinn að flestum öðrum SEO-bótum.

#SEO#Leitarorð#Tæknilegt SEO#Notendaupplifun
Algengar spurningar

Algengar spurningar

Stutt svör við því sem flestir vilja vita um þetta efni.

Þarf ég að gera allar tíu aðgerðirnar strax?
Nei. Það er betra að gera þrjár vel en tíu illa. Byrjaðu á grunninum og byggðu ofan á það.
Hvaða þrjú atriði gefa oftast mestan ávinning?
Leitarorð, efni og hraði. Ef þessi þrjú eru veik, er restin erfiðari.
Er þessi listi fyrir nýja vefi eða eldri vefi?
Báða. Nýir vefir nota listann til að byrja rétt. Eldri vefir nota hann til að finna veikleika og forgangsröðun.
Sigurður Þór

Sigurður Þór

Stofnandi og framkvæmdastjóri 55.is. Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu með áralanga reynslu af SEO, Google Ads og vefsíðugerð fyrir íslensk fyrirtæki.

Tilboð

Vilt þú ná betri árangri?

Við hjálpum íslenskum fyrirtækjum að vaxa með gagnreyndri stafrænni markaðssetningu. Fáðu ókeypis ráðgjöf í dag.

Tökum spjall