Inngangur
Spurningin “hvað kostar vefsíða?” hljómar einföld, en hún er sjaldan einföld í framkvæmd. Tvö fyrirtæki geta bæði sagt að þau “þurfi nýjan vef” og samt verið að tala um gjörólík verkefni.
Annað gæti þurft einfalda og skýra fyrirtækjasíðu sem hjálpar fólki að hafa samband. Hitt gæti þurft bókunarflæði, sérsmíðaðar lendingarsíður, textavinnu, betri hraða og grunn sem styður bæði leitarvélabestun og auglýsingar síðar meir.
Þess vegna er betra að leita ekki að einni töfratölu. Betri spurning er þessi: hvað ertu í raun að kaupa, hvað fellur undir verkið og hvernig sérðu hvort tilboðið sé skynsamlegt?
Stutta útgáfan: verð ræðst af umfangi, efnisvinnu og virkni. Biddu um skriflegt tilboð sem aðgreinir smíði, textavinnu, tengingar og rekstur og segir hvort verð sé með eða án virðisaukaskatts. Í verðskrá 55.is eru mánaðarlegir auglýsinga- og SEO pakkar. Þau gjöld eru ekki verð fyrir smíði nýs vefs.
Af hverju er svona mikill verðmunur á vefsíðum?
Ástæðan er ekki bara hönnunin. Verð á vefsíðu ræðst af því hversu mikið þarf að hugsa, skrifa, hanna, byggja og tengja saman.
Það sem ýtir verðinu oft mest upp eða niður er þetta:
- hversu margar síður og snið þarf að smíða
- hvort texti og efnisuppbygging fylgja með
- hvort vefurinn á að styðja við fyrirspurnir, bókanir eða sölu
- hvort sértækar tengingar eða kerfi þurfa að tala saman
- hversu mikið þarf að laga fyrir síma, hraða og SEO grunn
Vefur er því ekki bara útlit. Hann er líka skilaboð, flæði og tæknilegur grunnur.
Verðið fer sjaldnast mest í fallega forsíðu
Fólk sér oft bara það sem birtist á skjánum. Það sem kostar tíma er hins vegar yfirleitt undirliggjandi vinnan sem gerir síðuna nothæfa.
Skilaboðin þurfa að verða skýr
Ef ekki liggur fyrir hvað fyrirtækið selur, fyrir hvern og hvert næsta skref á að vera, þá þarf að vinna það áður en góður vefur verður til. Annars færðu síðu sem lítur ágætlega út en útskýrir þjónustuna illa.
Uppbyggingin þarf að leiða fólk áfram
Góður fyrirtækjavefur er ekki bara forsíða og nokkrar textablokkir. Hann þarf að raða upplýsingum þannig að notandinn skilji hratt hvar hann er staddur, hvað er í boði og hvað hann á að gera næst.
Þess vegna tengist verðspurningin oft líka því hvort þú sért að fá bara útfærslu eða raunverulega stefnu fyrir vefsíðugerð.
Tæknilegi grunnurinn skiptir meira máli en margir halda
Ef vefurinn á að vera hraður, virka vel í síma og halda góðum grunni fyrir leit og auglýsingar, þá þarf að huga að fleiri atriðum en bara designinu.
Það er ástæða fyrir því að verkefni sem virka einföld á yfirborðinu enda oft stærri þegar farið er að skoða:
- farsímanotkun
- hraða og myndastjórnun
- eyðublöð, mælingar og conversion tracking
- textabyggingu og lendingarsíður
- tæknilegan grunn fyrir áframhaldandi markaðsvinnu
Svona líta verkefni út í raun, ekki bara í tilboði
Það hjálpar oft að hugsa um verð eftir tegund verkefnis í stað þess að leita að einni venjulegri tölu.
Einfaldur kynningarvefur
Þetta hentar fyrirtæki sem þarf traustan grunn: forsíðu, þjónustusíðu, um okkur, samband og skýra leið til að senda fyrirspurn.
Slíkt verkefni er yfirleitt hagkvæmara ef:
- efnið er tiltölulega skýrt fyrir
- engar flóknar tengingar eru nauðsynlegar
- markmiðið er fyrst og fremst traust og fyrirspurnir
Fyrirtækjavefur sem á að selja betur
Þá er verkefnið ekki lengur bara að vera með síðu. Þá þarf vefurinn að hjálpa fólki að velja, skilja verðmætið og taka næsta skref.
Þar getur kostnaður hækkað vegna:
- fleiri lendingarsíðna
- textavinnu og skýrari efnisstefnu
- betri CTA flæðis
- mælinga og conversion hugsunar
Vefur með bókunum, netverslun eða sérkröfum
Þegar greiðslur, bókanir, samþættingar eða sérsmíði koma inn hækkar verkið eðlilega. Það er ekki óeðlilegt, því þá er verið að byggja rekstrarverkfæri, ekki bara upplýsingasíðu.
Þetta er oft punkturinn þar sem ódýrt tilboð og raunhæft tilboð fara að skilja leiðir.
Hvað er oft innifalið og hvað ekki?
Ein stærsta ástæðan fyrir ruglingi í verðtilboðum er að eitt fyrirtæki telur ýmislegt innifalið sem annað rukkar sér.
Yfirleitt þarftu að sjá þetta skýrt:
- er hönnun innifalin
- er textavinna innifalin
- eru myndir eða myndvinnsla innifalin
- er uppsetning á formum og mælingum innifalin
- er tæknilegur grunnur fyrir hraða og SEO innifalinn
- er hýsing, lén eða viðhald innifalið eða sér liður
Í verðskrá sérðu mánaðarlega markaðsþjónustu. Fyrir nýjan vef þarf sérstakt tilboð í skilgreint verkefni. Fáðu skýrt fram hvaða vinna fylgir smíðinni og hvaða þjónusta er valfrjáls eftir birtingu.
Hvenær er lágt verð eðlilegt?
Lágt verð er ekki sjálfkrafa rautt flagg. Það getur verið mjög eðlilegt þegar verkefnið er afmarkað og væntingarnar eru skýrar.
Til dæmis þegar:
- þú þarft fáar síður
- efnið er nánast tilbúið
- engin sértæk virkni þarf að fylgja
- markmiðið er einfaldur og snyrtilegur grunnur
Í slíkum tilvikum getur verið alveg skynsamlegt að byrja smátt og bæta svo við seinna.
Hvenær verður ódýr vefsíða dýr?
Ódýr lausn verður dýr þegar þú þarft að endurgera hana fljótlega eða þegar hún heldur aftur af sölu og markaðsvinnu frá fyrsta degi.
Það gerist oft þegar:
- síðan er byggð of þröngt fyrir næstu skref
- textinn er almennur og óskýr
- símaupplifunin fær ekki næga athygli
- hraði og tæknilegur grunnur eru veik
- vefurinn styður illa við SEO eða auglýsingar eftir launch
Ef þú þarft svo að endurskrifa texta, laga flæði og byggja nýjar lendingarsíður stuttu síðar, þá sparaðist lítið.
Hvernig berðu saman tvö tilboð án þess að bera saman epli og skrúfjárn?
Ef tvö tilboð eru ólík í verði þarftu fyrst að sjá hvort þau séu yfirleitt að bjóða sama hlutinn.
Spyrðu þetta áður en þú velur:
- Hvað er raunverulega innifalið?
- Hver sér um texta og efnisuppbyggingu?
- Er mælingum og fyrirspurnaflæði sinnt eða bara útlitinu?
- Hvernig er hugað að síma, hraða og tæknilegum grunni?
- Hvað fellur utan verks og getur bæst ofan á?
Gott tilboð á ekki bara að segja hér er verð. Það á að útskýra hvað þú færð og hvað þú færð ekki.
Berðu saman stofnkostnað og rekstur yfir sama tímabil
Biddu um að smíði, efnisvinna og flutningur séu aðskilin frá endurteknum gjöldum fyrir hýsingu, leyfi og viðhald. Skráðu líka hvort gjöld hefjist við undirritun, afhendingu eða birtingu. Annars getur sama mánaðartala þýtt ólíkan heildarkostnað.
Eftirfarandi dæmi er tilbúið til að sýna reikninginn. Þetta eru hvorki tilboð frá 55.is né verkefni viðskiptavina. Allar tölur eru án virðisaukaskatts og gert er ráð fyrir tólf mánaðarlegum greiðslum eftir afhendingu.
- Tilboð A: 900.000 kr. fyrir smíði og 20.000 kr. á mánuði fyrir rekstur. Samtals 1.140.000 kr. fyrir smíðina og fyrstu tólf mánuðina.
- Tilboð B: 1.100.000 kr. fyrir smíði og 10.000 kr. á mánuði fyrir rekstur. Samtals 1.220.000 kr. yfir sama tímabil.
A er 80.000 kr. ódýrara yfir þetta tímabil þótt mánaðargjaldið sé hærra. Það segir þó ekki hvort A henti betur. Ef B innifelur textavinnu eða uppfærslur sem þarf að kaupa sérstaklega með A er umfangið ólíkt. Bættu þeim liðum við samanburðinn áður en þú velur.
Fáðu einnig skýrt svar um hvað gerist við lok samstarfs: hvaða gögn og aðgangar fylgja, hvort hægt sé að flytja vefinn og hvaða kostnaður fylgi því. Greinin um eignarhald og afhendingu vefsíðu tekur við þeirri ákvörðun. Lægri upphafsgreiðsla ein og sér segir lítið um kostnað við að reka og halda vefnum til lengri tíma.
Á vefsíðan að standa ein og sér eða vinna með markaðsstarfinu?
Þetta skiptir máli fyrir verðið og fyrir gæðin.
Ef markmiðið er bara að setja nýjan vef í loftið getur verkefnið verið minna. Ef vefurinn á hins vegar að styðja við fyrirspurnir, SEO og auglýsingar seinna meir þarf hann að vera hugsaður sem hluti af stærra kerfi.
Þá skiptir máli að:
- þjónustusíður séu skýrar
- næstu skref séu sýnileg
- mælingar séu til staðar
- hraði og símaupplifun haldi
Þess vegna verður oft skynsamlegra að borga aðeins meira fyrir réttan grunn en að kaupa lausn sem lítur út fyrir að vera ódýrari en þarf svo að laga í flýti.
Hver er skynsamlegasta leiðin fyrir flest fyrirtæki?
Fyrir mörg fyrirtæki er besta leiðin ekki að byrja á stærsta mögulega verkefninu. Hún er að skilgreina lágmarksútgáfu sem gerir þetta vel:
- útskýrir þjónustuna skýrt
- byggir upp traust
- leiðir fólk að fyrirspurn
- heldur góðum tæknilegum grunni
Síðan er hægt að bæta við fleiri lendingarsíðum, efni, SEO vinnu eða auglýsingaflæði þegar grunnurinn er kominn.
Ef vefurinn á að hjálpa sölunni þarf tilboðið að segja hver sér um efni, fyrirspurnaflæði og prófanir. Hönnun ein og sér svarar ekki þeim spurningum.
Áður en þú biður um verð, hafðu þetta tilbúið
Þú færð betra og nákvæmara tilboð ef þú getur svarað nokkrum hlutum fyrirfram:
- hvað á síðan að gera
- hvaða síður eða flæði þurfa að vera til
- hvort texti og myndir séu til
- hvort bókanir, netverslun eða annað kerfi þurfi að fylgja
- hvort markmiðið sé ímynd, fyrirspurnir, bókanir eða sala
Þegar þetta er skýrt verður samtalið betra og verðið raunhæfara.
Notaðu leiðbeiningarnar um undirbúning vefverkefnis til að setja markmið, stöðu efnis, ábyrgð og afhendingarpróf í sömu verkefnalýsingu fyrir alla tilboðsgjafa.
Lokaorð
Verð á vefsíðu er ekki áhugavert eitt og sér. Það sem skiptir máli er hvort verðið passi við það sem á að byggja og hvort vefurinn eigi að hjálpa fyrirtækinu áfram eftir að hann fer í loftið.
Ef þú ert að meta næsta skref skaltu skoða vefsíðugerð til að sjá hvernig við hugsum verkefnin, fara í verðskrá ef þú vilt ramma utan um kostnaðinn og lesa svo farsímavæna hönnun og síðuhraða ef þú vilt sjá hvað hefur mest áhrif á gæði nýs vefs í reynd.
Viltu fá mat á umfangi? Sendu fyrirspurn um vefsíðugerð með núverandi vefslóð ef hún er til, aðalmarkmiði, stöðu texta og mynda og því hvaða virkni þarf að fylgja. Taktu fram hvort fjárhagsramminn nái aðeins til smíði eða líka til reksturs eftir birtingu. Þá verður auðveldara að ræða afmarkað verk og kostnað sem hægt er að bera saman.